17.4.2007 | 14:59
eyðsluseggur...
já það virðast ekki vera nokkur takmörk fyrir því hvað maður getur stundum eytt af peningum í þvílíka ruglið og bara án þess að blikka svo mikið sem öðru auganu til hálfs....
lenti í smá eyðslusemi í smáralidinni í gær og svo aftur í kringlunni núna áðan....keypti mér sosum ekki margt en nóg kostaði það samt.
páskafríið var mest afslöppun í sveitinni en ég lét mig hafa það að fara 3 kvöld til akureyrar að kíkja á lífið...var bara ágætt enda maður búinn að sakna akureyrísks djamms síðan maður flutti hingað í borg óttans.... nú er skólinn byrjaður aftur en ekki nema ein og hálf skólavika eftir og ég get ekki beðið eftir að klára prófin af og fara heim að vinna.....fékk vinnu á Hvammi á húsavík og mér skilst víst að það sé fínt að vinna þar....það verður sko ekki hótelið aftur þetta sumarið....maður getur ekki að því gert að fá ógeð á því að vinna þar....
en þetta er nóg í bili......cya
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.2.2007 | 15:02
jamm og jæja
er í tíma.....er alveg að sofna.....voðalega er maður eitthvað þreyttur þessa dagana....líklega því það var vinnuhelgi.....brjálað að gera
ég lét verða af því að fá mér þetta tattoo....mega flott...á reyndar ekki mynd af því núna.....það er ekki auðvelt að taka mynd af bakinu á sjálfum sér (trúið mér ég reyndi)
langar oggupínu að kíkja norður um helgina.....þorrablót í skólanum hjá litlabróður......nenni samt ekki að fara fyrst ég er nýbúin kíkja......svo kemur Valur af sjónum á föstudaginn og verður í viku fríi að þessu sinni tengdó að koma í heimsókn og við flytjum! jeah! hlakka ekkert smá til....fer í ikea og kaupi fullt af flottu dóti til að setja í nýja herbergið
næsta helgi afslöppun.....hlakka til.....fékk ekki blóm á konudaginn en það er í lagi....greyið var ekki heima....bætir mér það upp vonandi um helgina
kv. Sóley
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2007 | 16:01
Jahá!
haldiði nú ekki að kjellan sé á leiðinni að fá sér eitt stk tattoo á eftir þetta er mitt fyrsta og ég er komin í nett stressaðan fíling reyndar en þetta verður ekkert mál held ég... eða það vona ég allavega..annars verð ég alveg band brjáluð og lúskra á tattoo gaurnum neee...segi svona.....en ég set kannski mynd af því hérna inn við tækifæri...ef ég dey ekki á meðan hann er að þessu
kv. Sóley
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.2.2007 | 14:43
oj maður!
Súkkulaðibað í tilefni Valentínusardags | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.2.2007 | 12:32
Moulin Rouge!
"The greatest thing you'll ever learn is just to love and be loved in return"
halló halló! fyrir svefninn í gær freistaðist ég til að glápa á Moulin Rouge sem var þá í sjónvarpinu.....afskaplega hugljúf mynd og allt það um gaur sem hittir hóru og þau verða massíft ástfangin eftir 2 mínútu kynni og myndu lifa happily ever after nema hvað kjellingin gefur upp öndina í enda myndarinnar og skilur grey gaurinn eftir aleinan og bitran og vælandi...sorglegt.....þessi týpíska ástarsaga þar sem fallega gellan velur frekar fallega fátæka gaurinn heldur en ljóta ríka náungan.... en það er ekki hægt að segja annað en að Nicole Kidman og Ewan McGregor geri þessa mynd að því sem hún er....snilld!
Bloggar | Breytt 13.2.2007 kl. 15:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.2.2007 | 15:37
ný síða!
nú á ég tvær bloggsíður því að ég verð víst að búa eina til í UTN (upplýsingatækni) í skólanum.
ekkert að því sosum.....það er aldrei nóg bloggað í heiminum
en jæja...hérna mun eitthvað koma inn af mér næstu vikurnar...
njótið
kv. Sóley
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)